geeeisp..
góðan mánudag. ég er stödd á þjóðarbókhlöðunni. geispa eins og mér sé borgað fyrir það eftir annsi syfjulegan morgunn á þjóðdeild safnsins. það er nú meira batteríið. ekkert má. ekki einu sinni taka með sér tösku inn á lestrarsalinn. svo var ekki einu sinni þráðlaust net! einum of forneskjulegt fyrir minn smekk.
Allavega, þá er kominn mánudagur eftir frekar viðburðalitla helgi. gerði ekkert sem öðrum gæti þótt áhugavert. ég horfði á sjónvarpið, fór í göngutúr, horfði á bíómynd, fór í heimsókn og borðaði súkkilaðiköku, hékk í tölvunni, eldaði góðan mat og borðaði og þar frameftir götunum.. yndisleg helgi engu að síður. þessi dagur fer í heimildavinnu og önnur syfjuleg verkefni.. þá er best að geispa, teygja sig, standa upp, fá sér gott að borða og stóran kaffibolla í eftirmat og súkkulaði meððí…
Takk fyrir björgunina Heiða mín..mikið vorum við mæðgur fegnar að sjá þig
Já Já Sumir hafa tölvu til að hanga í ekki aðrir!!!!!!!
eruði búin að sjáidda?
http://www.zucchine.blogspot.com/
æjæj elli minn.. er tölvan þín enn í frysti ?
já björn, ég er búin að sjá þetta. dæmalaust hvað kúrbíturinn hefur áhrif víða