Góðan dag og velkomin í Stiklur síðustu daga.
- Ég keypti mér nýja íþróttaskó og íþróttabuxur. Rosalega flott, var mjög nauðsynlegt að eignast þar sem gömlu skórnir meiða mig og gömlu buxurnar eru með gati í klofinu og næstum gegnsæjar. Ég er samt enn með bömmer yfir því sem ég borgaði fyrir.. ef við lýtum á björtu hliðarnar þá var þetta staðgreitt og visa-djöfullinn kom hvergi nærri!
- Hittum Möttu og Hjálmar í drykk á Tapas barnum.
- Kolla bakaði handa okkur vöfflur og bauð okkur í kaffi. Það var kærkomið enda langt síðan síðast. Þar hitti ég öll systkini mín, nema það yngsta..
- Fórum út að borða á TGI Fridays með Þorgrími og Chloe og fengum fínasta mat sem kom á óvart.
- Gerði lista yfir jólagjafainnkaup. Er búin að ákveða hverjum ég ætla að gefa jólagjöf og hvað það á að vera. Nú er bara að fara og versla !
- Fórum í bíó með föngulegum systrum mínum tveimur, föngulegum stórabróður mínum og hans fríðu frú.. sáum In her shoes sem var bara ágætis ræma.
- Lenti í miklum umræðum um hvaða leikarar mér finnst vera flottir og hverjir mér finnst ekki flottir. Komst að því að ég er ekki hrifin af fullkomnu útliti eða mjög fíngerðum karlmönnum. Nema þeir hafi einstaklega fallegt bros.. the smile says it all 🙂
- Keypti óvart pepsi í staðinn fyrir pepsi max. Drakk tvö glös áður en Pétur fattaði hvað var í gangi. Þvílík martröð.. ojjj
- Ég held ég sé loksins að losna við kvefið! Þetta er búið að vera ansi pirrandi, hef varla gert annað en að hósta og snýta mér síðustu rúmlega viku.
Þá er ekki fleira í þættinum í kvöld, veriði sæl.
Sælt veri fólkið .. flott að sjá að fólk hefur nóg að gera, uss fara í bío og gera ýmislegt sér til skemmtunar, en ég fór á Icefitness í gær í Mosó og það var geðveikt gaman nú er bara að taka .. á í ræktinni og gera það vel 😉