hæ, lítið að frétta af okkur þessa dagana. erum bæði búin að vera með þessa líka skemmtilegu magapest með tilheyrandi heimsóknum frá gullfossi og geysi. held að þetta sé að lagast samt. pési sæti er núna að vinna á barnum og ég hef ekkert betra að gera en að blaðra eitthvað hér. ég var með saumaklúbb hérna í gær sem var bara stuð þrátt fyrir skrítinn maga. þær mættu bara allar sem eru á svæðinu (þeas ekki í danmörku eða hornafirði) og við saumuðum helling eins og venjulega. ég skellti í eina tertu og einn heitan rétt handa dömunum.. algjört gúmelaði! efst í huga núna er léleg sjónvarpsdagskrá og bévítans masters-umsóknin sem ég þarf að skila á mánudaginn. verst að ég veit ekkert hvað ég á að skrifa á hana !!?? eigið góða helgi öllsömul 🙂

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *