Gestakokkurinn er Tryggvi
Þetta þarftu: Slatta af ýsu, lausa í roði og beinum, 1/2-1 lauk, 2 hvítlauksrif, túmat, rifinn ost, cajun krydd, ólívuolíu og eldfast mót. Borðist með hrísgrjónum og soya
Svona gerirðu: Skellir cajun kryddi á ýsuna bak og fyrir og lætur hana svo á botninn á mótinu.. Laukinn og hvítlaukinn í múlínexinn og í tætlur… sem dreifist yfir ýsuna. Svo er túmaturinn skorinn í skeiðar og lagður yfir … oggulítil ólífuolía yfir allt saman… og að lokum ostinum stráð yfir. heila klabbinu svo skellt í upphitaðann ofn á 175° í 10-15 mínútur og síðan er bara að gúffa í sig.
Að lokum: Lúmskt gott að sáldra steiktum lauk yfir þegar maður er búinn að fá sér á diskinn. Í indónesíu er t.d. steiktur laukur rosalega vinsæll með hrísgrjónum og eiginlega ómissandi eftir að maður kemst upp á lag með það. Hinsvegar er varhugavert að neyta mikið af þessum rétti fyrir mikilvæg mannamót… en hann virkar samt ágætlega við kvefi
Enn að lokum: Þessi réttur er niðurstaða mikillar þróunarvinnu þar eð í fyrstu borðaði ég ekki hvítlauk og fannst ýsa vond, en Björt fannst laukur vondur… einhvernveginn þá kombinera hinsvegar öfgarnar svona hreint út sagt ágætlega saman
Kveðja frá Hollandi, Tryggvi Már gestakokkur