Monthly Archives: October 2005

Rock ´n´ Roll

Stuð í gær. Skelltum okkur á rokksjó. Þakið ætlaði af húsinu. Gaman að sjá hvað það var lagt mikið í þetta. Svo var ball á eftir með KUSK. Sökkaði soldið. Misstu alveg dampinn á eftir sjóinu. Fórum heim um 2 leytið minnir mig. Vaknaði svo þunnur í morgun og skellti mér körfuboltaleik þar sem Sindri beið lægri hlut fyrir Dímon frá Hvolsvelli með 4 stigum. Súrt. Dauðlangar að fara að spila aftur. Þetta er svo ógeðslega skemmtilegt. Þaldénú…

On the road again..

Er að pakka fyrir ferðina á morgun með Bítlana á shuffle (happiness, is a warm gun, úúúúú.. ó je). Ég er að deyja úr spenningi. Sumum þætti kanski skrítið að ég væri svona spennt fyrir að fara á stað sem ég er búin að vera með annan fótinn á og oft báða alla ævi. Var síðast fyrir austan mánaðarmótin ágúst-september svo það er ekkert rosa langt síðan ég var þar síðast. Samt er ég með fiðrildi í maganum yfir þessari ferð enda er ég að fara að gera svo svaka margt skemmtilegt! Það er ekki spáð neinu svaka fínu veðri. Snjókoma/slydda/rigning, hiti við frostmark og rok. Ekkert slakandi ferðaveður. Issssssssss ég nenni ekki að hafa áhyggjur af því. Hef örugglega upplifað það verra. Erum allavega á glænýjum vetrardekkjum í þetta skiptið so We’ve got the upper hand, so to speak ;o)
Byrja morgundaginn á því að skutla Pésa í vinnuna, klára svo að pakka, fer svo í ræktina klukkan 10 og svo ætla ég að fara í búð og kaupa belti handa Pésa (hann er orðinn svo mikill mjóni að gamla beltið hans sem hann er búin að eiga í næstum áratug er hætt að virka, og ekki viljum við að hann missi buxurnar niðrum sig í miðjum ræl á ballinu!) Svo, fyrst ég er á búðarrápi, ætla ég að finna mér kanski fínan hlýrabol til að vera í og kanski hálsmen líka og eyrnalokka og nýtt púður og augnskugga og algjörtpæjugloss og og og.. nei nei, það verður ekkert svoleiðis.. ekkert svoleiðis sko.. hmm.. ha?

Það er alltaf..

.. kalt inni á þessari skrifstofu! brrrrr…….
Var í ræktinni í morgun. Næst síðasti tíminn á þessu námskeiði. Var alveg pottþéttur tími með áherslu á eftri part líkamans og ég get svo svarið það ég get varla setið upprétt, get varla pikkað, get varla lyft skólatöskunni. Sérlega hressandi! Maður kemst nú ekki hjá því að taka soldið á og púla (púla, með glamp’í augum, eld í æðum..) enda leikurinn til þess gerður. Svo var ég mæld í bak og fyrir og vigtuð, er mjög ánægð með árangurinn, er sko búin að massa þetta námskeið!
Er núna í skólanum að reyna að gera eitthvað af viti. Er eitthvað annars hugar. Hlakka svo mikið til um helgina, en þá förum við austur!! ji hvað það verður gaman. Fer með mömmu og pabba, togga og chloe, kollu og kanski palla og auðvitað pésa sæta á einhverja svakalega rokksýningu með dinner og dansleik og alles! Þar ætla ég sko að dansa (hvað er betrennað dansa?) Svo ætla ég auðvitað að hitta nýjasta frændann sem ég hef ennþá ekki séð, horfa á tvo körfuboltaleiki og allt mögulegt meira. Það verður sko þétt dagskrá í þetta skiptið. Við ætlum að reyna að leggja snemma af stað á föstudaginn svo við náum í kvöldmat. Það er nauðsynlegt að ná amk einum kvöldmat hjá pabba! annað væri nú skandall..

Ratatat

Er að hlusta á hljómsveitna Ratatat sem spilaði víst á Airwaves síðustu helgi og mörgum þótti fínt stöff. Hef ég lesið. Ég er alls ekki að gera þetta í réttri röð. Hefði átt að hlusta fyrst og kíkja svo á tónleikana en ekki láta tónleikana fara framhjá mér og uppgvöta svo af hverju ég missti. Er búin að ákveða að taka Airwaves með trompi næst. Annars finnst mér tónlist Ratatat mjög fín. Ekkert líkt því sem ég er vön að hafa í eyrunum. Uppáhaldslagið mitt hingað til er Desert Eagle. Mér finnst svakalega hressandi að þetta skuli vera instrumental, fínt að fá frí frá söngnum. Mér finnst nafnið á hljómseitinni frábært. Minnir mig á Lukku Láka bækurnar. Þar var einmitt hundurinn Ratatati sem ellti Láka hvert sem hann fór, eða var það ekki?
Er að bíða eftir að Amy byrji. Veit ekki afhverju. Hún er ekkert að gera neitt fyrir mig. Það fer líka massa í taugarnar á mér hvað dagskráin á skjá einum er alltaf of sein. Núna er hún 15 mínútum seinni en auglýst er. Maður myndi ætla að þá væri kanski hægt að sleppa nokkrum auglýsingum til að ná réttur róli. neinei. Fyrir skjá einn er það að sleppa auglýsingum dauðasynd.

Fyrirtaks morgunbollur

Þetta þarftu: 13dl hveiti, 3dl hveitiklíð, 1msk sykur, 1tsk salt, 1bréf þurrger, 6dl volg undanrenna, 2msk matarolía

Svona gerirðu: Blandið saman þurrefnum og geri (skiljið samt soldið eftir af hveitinu til að hnoða upp seinna). Hellið olíu og undanrennu útí deigið (gerið svona holu fyrst) og hrærið vel með sleif (deigið má vera soldið blautt). Látið svo hefast í hálftíma á hlýjum stað. Hnoðið svo afgangshveitinu í ef þess þarf. Mótið tvær jafnlangar lengjur úr deiginu og skiptið hvorri lengju í 10 jafnstóra bita sem þið mótið úr bollur og raðið á bökunarplötu. Látið hefast aftur, nú í 15-20 mínútur. Pennslið svo bollurnar með mjólk og skellið í ofninn, 200° í 15 mínútur.

Að lokum: Enn ein uppskriftin úr bókinni góðu (Af bestu lyst). Ég bakaði þetta í gær í hádegismatinn og úr varð sérlega vel heppnaður bakstur verð ég að segja :) Ég setti samt ekki hveitiklíð (það var ekki til í búðinni) svo ég setti bara heilhveiti í staðinn. Það var bara mjög gott. Borðuðum þetta með osti og jarðaberjasultu og það var æði. Í dag fékk ég mér svona bollu í hádeginu og viti menn, hún var ennþá mjúk og bragðaðist sérdeilis prýðilega með skinku, osti og tómötum.

Afmæli


Þessi litla krúsídúlla á 1 árs afmæli í dag.
Til hamingju!!
Svo skilst mér að pabbi hennar hafi átt afmæli líka, bara fyrir nokkrum dögum síðan og auðvitað fær hann líka hamingjuóskir. Mamman og stóri bróðirinn fá líka sérstakar hamingjuóskir með litlu pæjuna og pabbann..
Sem sagt, Til hamingju öll!

Eða hvað…

Er að horfa á afmæli Eurovision. Þvílíkt fríksjó!! Aldrei hefði maður trúað því að einhver kona myndi dansa uppá sviði í sundbol og með ruðningshjálm!! Hvað var fólk að pæla? Ætli einhverjum hafi fundist þetta svalt? Ábyggilega einhverjum. Mér fannst það allavega. 10 stig fyrir að þora. Já….ekki hægt að segja annað en að þessi keppni hressi uppá tilveruna. Einmitt núna er þýsk smalastúlka með litla gítarinn sinn að syngja alveg hreint gullfallega perlu. Gerist bara ekki mikið betra. Svo við snúum okkur að öðru….Áfram CHICAGO BULLS!!