Sit hérna í kaffistofunni á bókhlöðunni, eða svona í jaðrinum. Er að drekka rándýrt kaffi. Lélega uppáhellinguá 100 kall. Fær mann til að meta mjög mikils flottu kaffivélina í Öskjunni, sem malar handa manni dýrindis kaffibolla og kostar bara klink, 20 kall. það er almennilegt kaffi. Nýmalað og rótsterkt. Beint í bollann. Meira að segja hægt að hita og þeyta mjólk út, algjör lúxus. Það fylgir ekki einusinni ábót á þessa okur eiturblöndu hérna í hlöðunni.. Eftir fjögurra tíma setu á þjódeildinni þá er þestta slæma kaffi samt kærkomið.. ég var eins og Elli bróðir, að deyja úr geispi.
Hef ekkert að segja. Er bara eiginlega að bíða eftir að Pétur verði búinn að vinna svo ég geti farið að sækja hann. Þá getum við farið að spá í hvað eigi að vera í matinn, svo eldað matinn og borðað hann. Fáum okkur svo kanski kaffibolla eftir matinn og kveikjum kanski á einhverjum kertaljósum. Ætli ég setjist svo ekki fyrir framan sjónvarpið, horfi með öðru auganu, hekli svolítið á meðan pétur brasar eitthvað í tölvunni.. æh, þetta er svona ótrúlega venjulegur dagur.
Eruð þið ekki bara hress? Það hefur verið eitthvað svo lítið að gerast hérna á þessari síðu undanfarna daga, dræmar undirtektir. Ég er farin að halda að Svanfríður sé sú eina sem nennir að lesa þetta. Það er allt í lagi mín vegna, ég skrifa þetta aðallega fyrir mig hvort sem er..
Bið að heilsa ykkur / þér Svanfríður :o)
bleble
Monthly Archives: March 2006
Árangur
Jahérna.. nú er ég sko stolt af sjálfri mér. Ég gat gleypt í mig fulla matskeið af þorskalýsi og kyngt. ÁN ÞESS að kúgast eða finnast það svakalega vont. Þetta hef ég ekki getað gert síðan ég var svona 10 ára gömul! Ég er meira að segja búin að ropa lýsisbragði en mér fannst það bara ekkert vont :o)
Ég er mjög ánægð með þennan árangur. Þetta sýnir greinileg merki þess að ég er orðin fullorðin. Loksins.
Bloggað af Dashboardinu
Tölvan mín yndisleg hefur fengið smá meikóver. Setti um helgina upp nýtt stýrikerfi á hana og heitir að Tiger. Mjög svalt stýrikerfi. Var samt dáldill klaufi við að bakka upp dótið mitt áður.. tapaði smá af gögnum. Ekki það mikilvægasta samt, heldur meira svona dót sem ég var búin að gleyma að væri þar sem það var eða fattaði ekki alveg að ég ætti (bla). Ég lifi það samt alveg af.. Það sem ég sé mest eftir er vídjóið sem ég tók af hljómsveitinni Antik á músíktilraununum síðasta þriðjudag. En það er svosem allt í lagi, ég tek bara nýtt vídjó á úrslitunum á föstudaginn!
Helgin fór semsagt að mestu leiti í allskyns tölvubras. Mér tókst samt líka að taka til í fataskápnum mínum. Hann er núna tómur. Vantar föt. Föt óskast.
öppdeit
Jæja krakkar mínir, nú er mál að kynna nýjungar hérna á kúrbítnum.
Fyrst ber að nefna hið stórskemmtilega og mjögsvosniðuga myndablogg sem ég hef sett upp hjá mBloggi símans. Þið finnið það hérna til hægri á síðunni, undir kúrbítnum. Lítið komið en verður meira og meira.. Þar fyrir neðan getið þið augum litið hvaða stórgóða tónlist læðist ljúflega um í hlustum okkar í það og það skiptið. Stórskemmtileg og mjögsvosniðug nýjung þó ég segi sjálf frá
Næst ber að nefna nokkra nýja stórskemmtilega og mjögsvosniðuga tengla. Nokkur blessuð börn á barnalandi. Funheitan tengil á heimasíðu hinnar stórgóðu hljómsveitar ANTIK sem er að gera það gott um þessar mundir. Einnig er kominn tengill á hið stórgóða félag framhaldsnema í jarðvísindum við HÍ er nefnist Folda.
Af okkur er annars allt fínt að frétta og við bæði í góðu duddi..
Tilvitnun
War is God’s way of teaching Americans geography.
– Ambrose Bierce
*mont*
Var á Músíktilraunum í gær þar sem Elías bróðir og hljómsveitin hans, Antik, voru að keppa, Það var frábært! Sjaldnar verið jafn stolt og jafn montin á ævinni! Þeir eru semsagt komnir áfram á úrslitakvöldið. Það var meira að segja dómnefndin sem valdi þá áfram !! þvílíkir snillingar
Skoðið þetta bara hérna..
….
Speki
Ég ætlaði að koma með einhver svakaleg spakmæli.. en svo datt mér ekkert í hug.
Jack Bauer..
.. er svakalegur.
Við erum dottin inn í 24.. byrjuðum á fyrstu seríunni um helgina. Nóg eftir héhéhé :o)
BOOOORRRINNNG!
Æji….chilliði á þessu Glitnis dæmi. Fokkings mindrape! Og hvað er málið með áhugamálin hjá þessum keppendum í ungfrú Reykjavík? Mér finnst þau ekki nógu frumleg. 99% er skokk og útivist…kommon.