Hellú. Gott að vera í páskafríi. Fannst samt soldið skrýtið að geta farið í keilu á föstudaginn langa. Hérna áður fyrr var þetta alveg svakalega rauður dagur. Maður sat bara heima, hlustaði á messu og spilaði ólsen ólsen. Nú er öldin önnur (í orðsins fyllstu) og ekkert mál að skella sér í keilu, bíó eða bara hvert sem er. Annars sit ég bara hérna í stofunni og bíð eftir að Heiða komi úr ræktinni. Hún er svo dugleg….selska*. Við vorum að horfa á seinasta þáttinn í Prison break um daginn. Ég ætla að spara ykkur mikinn tíma og segja…..don´t bother.
Gleðilega Kúrbítspáska!!
*Þessi elska.
**Óþolandi þegar maður veit ekki hvað maður á að skíra færsluna sína.
Hæ pæja – mikið ertu fín:)
Sammála með Prison Break…. óþolandi þegar seríur geta ekki bara ENDAÐ!!! Ég meina, maður er tilneyddur til að horfa líka á næstu seríu!!!
knysser….. (knus og kysser)
Védís Helga
Pétur bara orðinn pæja 😛 hehe kelling 🙂 nei nei mar skal ekki alveg tapa sér í gleðinni hérna… víííííí