Jæja, þá er ég búin aðskrá mig á hlaupastyrkur.is svo að hægt sé að heita á mig á laugardaginn eftir viku þegar ég ætla að hlaupa* 10km ásamt systkinum mínum og einhverjum afsprengjum þeirra. Ef þið viljið heita á mig (sem ég efast ekki um að þið aleg iðið í skinninu að gera) þá skulið þið smella á linkinn fyrir neðan.
Við systkinin ætlum að hlaupa til styrktar Göngum saman. Rannsóknir á brjóstakrabbameini. Ástæðan fyrir því er sú að hún elsku mamma okkar stendur nú í hetjulegri baráttu við þennan alltof algenga sjúkdóm.
Endilega tékkið á þessu: http://hlaupastyrkur.is/hlaupid/keppandi?cid=2513 .. þetta verður rússssst!!!
*hlaupa = skokka, jafnvel skokka hægt, jafnvel skokka mjööög mjööööög hægt og jafnvel svo hægt að það borga sig jafnvel fyrir mig að skipta yfir í labb (sem ég jafnvel myndi þá gera) til þess að komast einhverntíma á leiðarenda, jafnvel.. en á leiðarenda kemst ég!!
Þú ert dugleg Heiða mín og mér finnst þetta svo frábært hjá ykkur systkinunum að gera þetta.
Já Heiða mín við rústum þessu,ekki spurning:)
jíha!! áfram KR 🙂