Svona gerirðu: Hitið ofninn í 175°C. Maukið banananananana og hrærið saman við sykurinn. Bætið svo öllu öðru samanvið og hrærið saman. Setjið bökunarpappír í botninn á formi sem er ca 10x20cm á kant. Hellið deginu í formið og bakið í 55-60 mínútur
Að lokum: Þetta er uppskrift úr Gestgjafanum og er uppáhalds bananabrauðið mitt. Eiginlega vegna þess að með súkkulaðinu og hnetunum verður þetta eiginlega frekar eins og kaka en brauð. Súper auðvelt að baka. Mega gott 🙂
Þetta þarftu: 200gr kjúklingabringur (svona tvær bringur), 200gr sveppir, 1 blaðlaukur, 2 dl steinselja, 1lítri vatn, 2-3 kjúklingateningar, 125gr eggjanúðlur, 2-4 egg (semsagt hálft eða heilt egg á mann), 2msk sojasósa.
Svona gerirðu: Skerið bringurnar í þunna strimla, skerið sveppina og blaðlaukinn í sneiðar og saxið steinseljuna. Setjið vatn og teningana í stóran pott og sjóðið saman. Bætið núðlum og kjúklingi útí og sjóðið í 2mín. Setjið síðan grænmetið útí og sjóðið áfram í 3-4 mínútur. Kryddið með soja. Sjóðið eggin þanig að þau verði svona hálf-harðsoðin, skerið þau svo til helminga langsum og setjið einn helming í hverja skál.
Að lokum: Þetta er æðisleg súpa. Mjög einföld og fljótleg og hráefnið frekar ódýrt. Það er auðvitað hægt að nota ódýrari part af kjúllanum en bringurna, en þær eru samt alltaf bestar. Pabbi eldar þessa súpu oft en uppskriftin er upprunalega úr pastabókinni hans. Það er eiginlega nauðsynlegt að borða með þessu nýbakað brauð og drekka gott hvítvín með. Þá er þetta hin fullkomna máltíð. Ég fæ eiginlega bara heimþrá á Hraunhól 8 þegar ég hugsa um þessa súpu.. HB
Helga Rún er gestakokkur að þessu sinni. Hún sendi inn, alla leið frá Álaborg, þessa frábæru kjúklingauppskrift! Takk fyrir það
Þetta þarftu: 4-5 kjúklingabringur, 2 msk matarolíu til steikingar, 3 pressaða hvítlauksgeira, 2 saxaða lauka, ½ tsk salt, 5 tsk hot Curry Madras, 2 tsk cumin duft, 1 tsk paprikuduft, ¾ tsk kanil, 4 msk matarolíu, 2 msk púðursykur. Sósa: 1 dós niðursoðna tómata (nota vökvann), 6 msk soyasósu, 2 tsk edik, ½ tsk salt, 1 tsk pipar, 2 dósir hrein jógúrt (blandað út í í lokin) Meðlæti:4 msk kókosmjöl, 1 banani, rauðar og grænar paprikuræmur
Svona geririðu: Mýkja hvítlauk og lauk í olíu. Blanda þurra kryddinu saman við og hita vel með lauknum – ca. 1 min. Blanda 4 msk af olíu og 2 msk af púðursykri vel saman við. Láta í skál og kæla aðeins. Skera kjúklingabringur í strimla. Steikja á pönnu þar til kjötið er orðið hvítt að utan, blanda kjúklingi saman við kryddblönduna og láta bíða á meðan sósan er búin til. Þegar hún er búin til er öllu nema jógúrtinu blandað saman vel saman. kjúklingurinn er þá settur útí og hann látinn sjóða í 15 mínútur, jógúrtin er sett út í og látin sjóða með síðustu 5 mínúturnar. Meðlætið er gert þannig að þú ristar kókosmjölið á heitri og þurri pönnu og bætir svo bananabitum og paprikuræmum útá.
Að lokum: Með þessum rétti ber Helga Rún fram hrísgrjón og mango chutney. get ímyndað mér að þetta sé alveg Gebba gott.. namm kókos og bananar! Ótrúlega sneddí. Og nú þegar ég er búin að setja réttinn inn á þennan skemmtilega vef minn þá man ég pottþétt eftir að elda hann
Mér finnst að aðrir lesendur ættu að taka hana Helgu sér til fyrirmyndar og senda inn uppskriftir og hananú!
kollasaeta skrifar: úff.. eldaði kjúklingasamloku handa okkur í kvöld.. ætlaði í leikfimi en mig vantaði spark í rassinn.. og ákvað því að elda eitthvað gott.. og afþví að ég gerði mitt fyrsta fermingarthing í dag, ég keypti sálmabók með gyllingu, þá fékk fermingardrengurinn tilvonandi að velja kvöldmat og hann vildi kjúklingasamloku.. ég hef oft eldað svona samloku en í kvöld toppaði ég sjálfa mig.. sjitt hvað þetta var gott..
Þetta þarftu: tja eða það sem notaði í kvöld..kjúklingabringur, ca eina á mann, snittubrauð, æ þessi þarna frönsku, eitt á mann (það ætti allavega að duga en stundum borða mínir menn tvö , beikon, sveppir, iceberg, paprika, gúrka, tómatar, rauðlaukur, ólifuolía, hvítlaukur, kartöflur, fersk steinselja, ferskt rósmarín, hvítlaukskrydd. Hér er öllum frjálst að improvisera.. þetta er bara það sem ég notaði í kvöld..
Þetta gerði ég: Kartöfurnar skornar í báta og sett í eldfast mót, fersk steinselja og Rósmarín tjoppað smátt og stráð yfir og kryddað svo með hvítlaukskryddi, ólífuolíu helt yfir kannski ca 2msk. Þessu er öllu svo makað saman og bakað í ofni við 200° í svona 35-40mín. Kjúklingurinn kryddaður með góðu kjúklingarsteikarkryddi, skellt á sjóðandiheita pönnu í 3 mín á hvorri hlið, sett á grind og inn í ofn í 20 mín við 200°.Grænmetið sem þú ætlar að hafa með þessu er tjoppað þannig að það sé þægilegt að setja það á snittubrauð. Næst tók ég snittubrauðin, sker þau eftir endilöngu og þegar bringurnar og kartöfurnar eru tilbúnar set ég þau inn í ofn í svona 8 – 10 mín, þannig að helmingur sé við hliðina á helming.. á meðan læt ég kjúllan jafna sig græja beikonið og sveppina.. beikonsneiðarnar sker ég í tvennt, steiki þær og set þær svo á eldhúsrúllupappir til að taka mestu fituna. Sveppirnir eru skornir og steiktir upp úr smjöri/ólífuolíu og kryddaðir með salti og hvítlaukskryddi. Þegar bringurnar eru búnar að jafna sig smá eru þær skornar í sneiðar. Þegar brauðin eru til þá tek ég hvítlauksrif og nudda heit brauðin með þeim og svo læt ég smá góða ólífuolíu leka á brauðin. Svo raðar maður bara saman á samlokuna sína það sem maður vill.
Að lokum: Eiður notar alltaf bbq sósu á sína samloku og Palli notar yfirleitt sinnep. Við Birkir látum yfirleitt olíuna duga.. Við notum tannstöngla og allt til að halda þessu saman.. voða voða pró hjá okkur.. Svona leit mín út, innihald: kál, gúrka, rauðlaukur, sveppir, beikon, kjúklingabringa, ólifuolía.. sjæse hvað þetta var gottttt..
Ég og Pési gæddum okkur á þessu um síðustu helgi og ég bara skora á ykkur að prófa!
Þetta þarftu: 4 kjúlingabringur skornar í munnbita, olía, 1 saxaður laukur, 4 hvítlauksrif, 1/2 – 1 saxaður og fræhreinsaður chilipipar, 2 1/2 dl hrísgrjón, 2 dl hvítvín (+ það sem drekka á með), 5 dl kjúklingasoð, 10 risarækju, 4 saxaðir tómatar – helst vel þroskaðir, söxuð steinselja, salt og nýmalaður pipar.
Svona gerirðu: Steikið kjúklingabitana í olíu og geymið svo. Steikið svo laukinn og hvítlaukinn í olíu þar til hann verður svona mjúkur og glær, bætið þá paprikunni og chiliinu útí og steikið áfram í smástund. Svo er hrísgrjónunum bætt útí líka og þau steikt í smá stund með hinu. Þá er hvítvíninu hellt útí, hrært og látið malla smá. Svo er kjúklingasoðinu líka hellt útí og lok sett á pottinn og látið sjóða þar til grjónin eru soðin. Þá er rækjunum bætt við (auðvitað er skelin tekin af fyrst) og þær látnar malla með þangað til þær verða bleikar. Það tekur sirka mínútu eða tvær. Að lokum er tómötunum og kjúklingnum hrært saman við og allt kryddað með salti og pipar og steinselju.
Að lokum: Þessi uppskrift, upphaflega úr gestgjafanum en þar aðeins öðruvísi, er upprunin frá Louisiana. Þar er algengt að blanda saman skelfiski og kjúklingakjöti. Þetta myndi flokkast undir creola matargerð. Þetta er bara best í heimi! Ótrúlega gott. Gott að borða nýbakað massabrauð kollu sætu með þessu og sötra hvítvínið. Þessi réttur er sko algjör uppáhalds
Þetta þarftu: 700-800gr þorskflök, roðflett (eða t.d. ýsa), pipar, salt, 1 sítróna, 1 msk olía, 1 msk smjör, 200gr risarækjur, nokkur basilíku blöð. Spænsk tómatsósa: 4 tómatar, vel þroskaðir, 1 rauður fræhreinsaður chili, 25gr afhýddar möndlur eða kasjúhnetur, 4 hvítlauksgeirar, 1 msk rauðvínsedik, 150ml vatn, 1 tsk grænmetiskraftur, 1 tsk paprikuduft, pipar, salt
Svona geririðu: Skerið fiskinn í stykki og leggið á disk. Kryddið með salti og pipar á báðum hliðum. Rífið börkinn af sítrónunni yfir, skerið svo sítrónuna í tvennt og kreistið safann úr öðrum helmingnum yfir fiskinn. Látið standa á meðan sósan er búin til. Sósan: Saxið tómata og chili gróft og setjið í matvinnsluvél ásamt möndulum, hvítlauk og ediki. Látið ganga þar til allt er orðið að mauki. Setjið þá í pott, bætið við vatni og grænmetiskrafti. Kryddið með paprikudufti, salti og pipar og látið malla við hægan hita í um 10 mínútur. Smakkið og bragðbætið eftir þörfum. Hitið olíu og smjör á pönnu og steikið fiskinn við góðan hita í um 2 mínútur á annari hliðinni, snúið honum svo við og steikið í um 1 mínútu á hinni hliðinni. Bætið þá rækjunum við og steikið þær þar til þær hafa breytt lit á báðum hliðum. Hellið tómatsósunni á pönnuna og látið malla þar til fiskurinn er rétt soðinn í gegn en alls ekki lengur. Rífið basilíku blöðin yfir og berið fram strax.
Að lokum: Algjör uppáhalds fiskur. Þetta er uppskrift úr einhverjum gestgjafa og ég smakkaði þetta auðvitað fyrst hjá pabba eins og svo margt annað sem mér finnst gott. Ótrúlega gott að drekka með þessu gott hvítvín eða jafnvel rauðvín og borða massa brauð kollusaetu með. Ég á ekki neina matvinnsluvél en saxa bara allt í sósuna smátt og það svínvirkar. Ég hef bæði notað soðnar og hráar risarækjur. Ef ég nota soðnar þá set ég þær útí í lokin og læt þær hitna aðeins í sósunni, steiki þær ekkert enda eru þær þegar soðnar Þetta er ótrúlega ferskur og sumarlegur réttur. Chilibragðið og sítrónan og krönsí möndlur eru alveg að smellpassa saman. Hrikalega gott! Á myndinni er ég einmitt að fara að gæða mér á þessum frábæra rétti á föstudaginn langa og að þessu sinni er cous cous með. HB
Svona gerirðu: Roð- og beinhreinsið fiskinn og sneiðið sveppina. Leggið fiskinn í eldfast mót og setjið ananasinn yfir hann og sveppina líka. Saxið og skerið grænmetið og léttsteikið á pönnu. Saltið og piprið. Bætið ostinum útí og bræðið hann. Hellið svo mjólkinni útí. kryddið svo með paprikudufti og karrýi og setjið teninginn útí ef ykkur finnst það vanta. Hellið svo sósunni yfir fiskinn og skellið þessu svo í ofninn á 200° og bakið í hálftíma. Á meðan þetta bakast þá er upplagt að sjóða grjón!
Að lokum: Þetta kom á óvart, bjóst ekki við því að þetta væri svona gott! Uppskriftin er fenginn úr bókinn Af bestu lyst nr1 og í henni stendur að í hverjum skammti (uppskriftin er fyrir 6) séu ekki nema 278 hitaeinigar! Næst þegar ég elda þetta þá ætla ég að prufa að hafa einhvernveginn öðruvísi grænmeti, pottþétt brokkolí. Mér fannst það eiginlega vanta. Svo held ég að það sé líka gott að hafa með þessu cous-cous. Ég ætla að prófa það næst. HB
Á svona degi er algjört möst að baka eitthvað svakalega gott. Snjókoma og kalt úti.. þá jafnast ekkert á við glóðvolgt döðlubrauð beint úr ofninum. Játs, við bökuðum döðlubrauð og það var mjög ljúffengt. Þið getið skoðað uppskriftina hérna að neðan.. GEBBA GOTT!!
Svona geririðu: Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti og sykri ásamt döðlunum og hnetunum. Hrærið saman (í annarri skál) eggjum, mjólk, olíu og vanilludropum með gaffli. Blandið svo öllu saman með sleif og setjið í smurt aflangt form. Bakið á neðstu rim við 180°C í uþb 45 mínútur.
Að lokum: Í veðri eins og í dag þá er eiginlega bara skylda að baka. Fyrstu snjókorn vetrarins að falla og kalt úti. Þetta er alveg tilvalið. Snúum okkur að bakstrinum.. Sko ég átti bara svona einnota form og setti þetta deig í tvö svoleiðis. Svo notaði ég líka fjörmjólk en ekki léttmjólk eins og er í uppskriftinni en það bíttar ekki skipti. Brauðið smakkaðist alveg sérdeilis prýðilega nýkomið úr ofninum. Gott með og án smjörs. Við skemmtum okkur líka mjög vel í myndatökunni HB.
Svona gerirðu: Sósan: saxið paprikur og lauk, sjóðið saman tómata, paprikur, lauk, basil, og tabaskó sósu þar til sósan hefur þykknað (uþb 15-20 mín). Skerið fiskfökin í stór stykki og raðið þeim í ofnfast fat. Hellið svo sósunni yfir fiskinn. Deig: Blandið saman haframjöli, heilhveiti og saltogpipar. brytjið smjörlíkið saman við og blandið líka ostinum við. Stráðið þessu svo yfir fiskinn og það. Bakið við 175° í 20 mín.
Að lokum: Þetta er nýi uppáhalds maturinn minn. Vægast sagt frábær réttur. Ég hef aldrei eldað þetta sjálf, er svo heppin að eiga mann sem finnst gaman að elda góðan mat handa mér! Hann setur alltaf heila teskeið af tabaskói og það er akkúrat passlegt. Það er betra að hafa soldið kikk í þessu. Þetta er líka svaka holt segir bókin (Af bestu lyst), en uppskriftin er þaðan.. Með þessu höfum við borðað hrísgrjón, en erum að spá í að prófa kúskús einhverntíma, og jafnvel spaghetti. HB
Við erum á leiðinni í matarboð til Ismars og Özru og við þurfum að taka með okkur desert. Mín snaraði þá í eitt stykki djöflatertu eins og ekkert væri 🙂
Svona gerirðu: Botnar: Hitið ofninn í 160°C. Setjið 1/3 af púðursykrinum í pott ásamt kakóinu og mjólkinni. Hitið þetta við vægan hita þangað til kakóið er uppleyst. Takið pottinn af hitanum og bætið súkkulaðinu út í og hrærið þangað til það er bráðið. Kælið lítillega. Hrærið saman smjör og afganginn af púðursykrinum þangað til blandan er orðin létt og ljós. Bætið þá eggjarauðunum saman við, eina í einu. Setjið vanilludropana út í ásamt súkkulaðiblöndunni. Hrærið þetta vel saman. Blandið svo hveiti og sódadufti varlega saman við með sleikju. Stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið þær svo varlega saman við. Smyrjið svo botninn á tveimur smelluformum eða klæðið þau með bökunarpappír. Hellið deiginu í formin og bakið í u.þ.b. 35-45 mínútur. Látið botnana kólna í formunum í 5 mín áður en þið hvolfið úr þeim á bökunarpappír. Kælið botnana vel. Súkkulaðihjúpur: Setjið súkkulaði og smjör í skál og bræðið yfir vatnsbaði. Hrærið rólega í og gætið þess vel að blandan hitni ekki of mikið. Bætið flórsykri út í og þeytið vel saman. Kælið þar til hjúpurinn hefur þykknað. Vanillurjómi: Þeytið saman rjómann, flórsykurinn og vanilludropana. Þessi vanillurjómi er svo settur á milli botnanna tveggja og súkkulaðihjúpirnn fer ofan á kökuna.
Að lokum: Þessi kaka er algjör killer! alveg svakalega góð! Uppskriftin er fengin úr nýja kökublaði gestgjafans og prýðir forsíðu blaðsins. Við notuðum 70% síríussúkkulaði þegar við gerðum þessa köku um síðustu helgi. Það er sagt í uppskriftinni að það se best að nota form sem eru um 20-22 cm í þvermál því þá verður kakan svona há og flott. Okkar form eru held ég 26 eða 28 cm en þrátt fyrir það var hún alveg massa flott. Ekki alveg jafn þykkur rjóminn á milli og hjúpurinn ofaná náði nú ekki að leka en hún var samt geggjað flott eins og þið sjáið nú á myndinni, miklu flottari en á forsíðunni á gestgjafanum finnst mér sko.. ha?